fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég fæ að eiga seinna slottið líka sem Miðflokknum er skaffað, ég er þakklát fyrir það. Mig langar að ræða við hæstv. ráðherra um vindorkuna. Ráðherra boðar að setja reglur um vindorku sem eiga að kveða á um takmörkun á tilteknum svæðum og um neitunarvald sveitarfélaga. Það er nú þannig að mörg sveitarfélög landsins og bændur og landeigendur finna þunga pressu frá mjög svo áköfum fjárfestum sem flestir hverjir eru erlendir. Ég hef heyrt að sumir þeirra eða aðilar á þeirra vegum fari um sveitir landsins, bjóði bændum fjármuni og viðskiptakjör til að fá þá til að leggja land sitt undir vindmyllur, oft í óþökk nærsamfélagsins. Ég veit að ráðherra var á fundi á Hvanneyri um daginn og vonandi hlustar hann á það sem þar kom fram. Ég vil leyfa mér að benda ráðherra á að það er raunar mjög á reiki, þegar allt er talið, hvort vindorkugarðar dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda yfirhöfuð eða hreinlega auki. En hvað segir hæstv. ráðherra? Telur hann þetta umhverfisvænt þegar allt er talið? Og er þetta ekki ótrygg orka? Telur hæstv. ráðherra ekki rétt að flýta sér hægt — ég heyrði ekki betur áðan en að hann hafi sagt það sjálfur í ræðustól — og vanda til verka við uppbyggingu vindorku og nýta þá reynslu sem fæst af þeim tveimur verkefnum sem Landsvirkjun undirbýr við Búrfell og á Blöndusvæðinu?