157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:05]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Eitthvað eru ráðuneytið og ráðherra þá ekki að tala saman. Það eru tvö minnisblöð frá ráðuneytinu sem segja nákvæmlega að prófið verði eins ár eftir ár til þess að réttmæti og áreiðanleiki — ég er bara með þetta hér í tölvunni, en ráðherra hristir hausinn. En það eru tvö próf sem eru þannig og þetta er gert, svo að ég upplýsi ráðherrann um það, að prófin séu eins ár eftir ár, til að reyna að koma í veg fyrir að hægt sé að kalla prófin fram, að foreldrar geti fengið að sjá þau. Í lögunum stendur að ef prófin séu eins þá sé ekki hægt að kalla þau fram. Það er þannig.

Síðan langar mig að benda á að ef við tökum á lestrarvandanum, ef börn mæta út í samfélagið vel læs, vel reiknandi og sterk félagslega — en þannig er staðan ekki núna — þá fækkum við börnum með fjölþættan vanda. Þá þurfum við ekki endalaust að vera að byggja upp eitthvað því að það er ekkert sem þarf að byggja upp. Ég hvet ráðherra til að skoða þetta betur og koma einhverju lagi á ráðuneytið með þetta, hvort prófin séu eins eða ekki. Ef þau eru ekki eins verður hægt að kalla þau fram til foreldra og þá er prófabankinn ónýtur.