fjárlög 2011.
Frú forseti. Það merkilega gerðist nú að fjárlagafrumvarpið og fjárlögin fyrir árið 2010 voru raunhæf fyrir Landspítalann í fyrsta skipti í mörg ár. Það er vegna þess að Landspítalinn tók mjög myndarlega á rekstrarmálum sínum frá og með haustinu 2009 og er að ná þeim stórkostlega markverða árangri eftir margra, margra ára framúrkeyrslu og hallarekstur, að reka sig innan fjárheimilda. Spítalinn leggur mikinn metnað í að það takist og ætlar sér að klára árið þannig. Það má kalla afrek. Það munar nú ekki litlu að stærsta einstaka stofnun ríkisins nái þeim árangri. Og nákvæmlega í samræmi við verklagsreglurnar var farið í umbunarkerfið sem útfært hefur verið og verður gert gagnvart fleirum sem hafa náð slíkum árangri.
Ég veit að hv. fjárlaganefndarmenn fylgjast með og þekkja að við höfum náð marktækum árangri í að fækka þeim liðum sem eru umfram fjárheimildir þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður og niðurskurð. Af 22 liðum á vöktunarlistanum, veikleikavöktunarlistanum sem við uppfærum í fjármálaráðuneytinu, voru tíu innan heimilda, síðast þegar ég vissi. Þó voru þetta þeir 22 útgjaldaliðir í fjárlögunum sem við höfðum mestar áhyggjur af. Þar hefur einnig náðst markverður árangur.
Vegna þess sem hv. þingmaður sagði um tónlistarhúsið þá minni ég á að þar lágu fyrir bindandi samningar milli ríkis og borgar frá fyrri tíð um það verkefni og kostnaðarskiptinguna. Við því var ekki mikið annað að gera en að taka þá ákvörðun að hætta við í miðjum klíðum en það hefði falið í sér mikinn kostnað og sóun verðmæta.
Ég tek undir með hv. þingmanni að við þurfum að halda áfram að betrumbæta atriði í framkvæmdinni eins og að festa í sessi reglur um yfirfærslu fjárheimilda og fara algerlega eftir þeim. Þar hefur sömuleiðis verið tekið miklu fastar á en áður og við munum ekki færa (Forseti hringir.) neitt yfir sem víkur frá reglunum um 4% árlegan afgang og 10% uppsafnaðan heildarafgang.