fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skemmtilega spurningu. Ég ætla reyndar að geyma atkvæðaskýringu hans við fjárlög einu sinni sem ég fann, og er ansi hnyttin og skemmtileg, þangað til kemur að því að greiða atkvæði um fjárlögin. Ég get hins vegar sagt það að afi heitinn var hvað frægastur fyrir að hafa verið einn af þeim sem komu saman svokallaðri nýsköpunarstjórn árið 1944, ef ég man rétt. Þar settust hann og Ólafur Thors niður og sömdu um það hvernig við gætum breytt Íslandi úr því að vera þróunarland og yfir í það að vera vestrænt land. Þeim tókst það af því þeir ákváðu að þeir myndu vilja vinna saman að þessum hlutum. (Forseti hringir.) Þeir tóku niður pólitísku rifrildin og unnu saman að þessu og það er það sem við þurfum að gera innan þessara veggja, vinna saman, ekki vera með einelti.