152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:01]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir ræðuna sem var eðli málsins samkvæmt býsna víðfeðm. Mig langar að koma hingað upp og ræða aðeins við hv. þingmann um stórsókn, stórátak ríkisstjórnarinnar í geðheilbrigðismálum, hvort hv. þingmaður sjái þess merki í fjárlögum. Nú erum við að koma úr fordæmalausum tímum vegna heimsfaraldurs og geðheilsa landsmanna er þeim sem starfa á þeim vettvangi mikið áhyggjuefni, hvort sem um er að ræða geðheilsu fullorðinna eða geðheilsu barna og ungmenna. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún sjái einhver merki þess að raunverulegar aðgerðir séu í farvatninu.