fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og tek heils hugar undir það. Í skýrslu sem ég fékk í vor í sambandi við biðlistana kom nefnilega skýrt fram kulnun í starfi. Áhyggjur þeirra sem voru í heilbrigðiskerfinu voru að kulnun í starfi hefði stóraukist. Kulnun kemur líka vegna álags vegna þess að þau sjá ekki fram á að geta einu sinni afgreitt biðlistana. Það sem ég hef líka sérstakar áhyggjur af núna er það skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar að hafa ekki samið við sjúkraþjálfara, sérgreinalækna og talmeinafræðinga. Hún neitar að semja við þetta fólk og hvaða afleiðingar hefur það haft? Svo koma þeir hingað upp í ræðustól hver á fætur öðrum frá ríkisstjórninni og segjast hafa lækkað greiðslukostnað í heilbrigðiskerfinu. Þeir hafa ekki lækkað hann neitt, bara fært hann til og hann hefur aukist þar. Þeir eru núna að láta fólk borga fyrir sjúkraþjálfun og meðferð sérgreinalækna og talmeinafræðinga. (Forseti hringir.) Þeir eru ekki að gera neitt rétt í þessum málum og er ekki hv. þingmaður sammála mér í því?