fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanninum fyrir afbragðsræðu. Hún fór um víðan völl og nokkuð djúpt ofan í mikilvæga málaflokka sem brýnt er að við tökum svolítið djúpa umræðu um núna þegar við erum að tala um fjárlög íslenska ríkisins. Ég ætla ekki að teyma hv. þingmanninn í einhverja djúpa hugmyndafræðilega umræðu um einkarekstur og ríkisrekstur í heilbrigðiskerfinu en þingmaðurinn kom aðeins inn á það áðan. Ég hygg að það sé talsvert lengra á milli tveggja stjórnarflokka í því hvar mörkin þarna á milli eigi að vera frekar en á milli þess flokks sem ég sit á þingi fyrir eða þess flokks sem hv. þm. Oddný Harðardóttir situr á þingi fyrir, en mig langar samt aðeins að spyrja út í þetta. Við erum öll sammála um það, Íslendingar, held ég svona mestan part, a.m.k. flestir þingmenn, að allir Íslendingar eigi að eiga rétt á heilbrigðisþjónustu. Ríkið á að greiða fyrir þessa þjónustu, hvort sem það eru þá einkaaðilar sem reka hana og eru þar af leiðandi einhverjir milliliðir eða hvað. Ég hygg að við viljum öll efla Sjúkratryggingar Íslands sem aðila sem gæti samið við einkaaðila um einkarekstur þar sem mikilvægt er að bæta við til að efla þjónustu. Við viljum jú öll að þjónustan sé sem best. Án þess að við förum í einhverja djúpa umræðu um það hvar skilin þarna á milli eigi að liggja þá langar mig að beina þeirri spurningu til hv. þingmanns hvort við getum ekki verið sammála um það hér í þessum sal og hvort það sé ekki mikilvægt að taka þá umræðu líka núna — þrátt fyrir að það sé tiltölulega nýbúið að samþykkja heilbrigðisstefnu til ársins 2030, en í millitíðinni hefur náttúrlega komið heimsfaraldur sem hefur beint sjónum okkar að veikleikum í heilbrigðiskerfinu — hvort það hafi ekki vantað svolitla dýpt í að finna einmitt mörkin og skilin. Hvað á að vera inni á spítala, hvað á að vera í heilbrigðisstofnunum úti á landi, hvar gæti einkarekstur létt undir með opinbera rekstrinum og þar fram götunum? Þarf umræðan um þetta ekki að halda áfram af dýpt þrátt fyrir að við séum nýkomin með heilbrigðisstefnu?