152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[15:43]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, prýðisræðu, en viðurkenni að efnislega var ég ósammála helmingnum. Allt tal um borgarlínu — þar greinir okkur á, það er eitthvað, það er hægt að vinna með það. Ég vil hins vegar draga fram nú þegar við rýnum fjárlagafrumvarpið, m.a. út af mikilli reynslu hv. þingmanns, og ég kom að því í ræðu minni, áhyggjur mínar af tekjugrunni og sjálfbærni ríkissjóðs. Við höfum upplifað gríðarlega útgjaldaaukningu og beinlínis þenslu frá árinu 2017 þannig að á árinu 2019, fyrir Covid, vorum við komin með ósjálfbæran ríkissjóð. Nú spá Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Seðlabankinn um 4,9–5,3 hagvexti á næsta ári en síðan fellur hagvöxturinn. Umhverfi útflutningsatvinnugreinanna verður mjög óhagfellt líka. Það verður hátt raungengi og reyndar er spáð hækkandi raungengi fyrir þær þannig að það verður erfitt fyrir okkar helstu útflutningsgreinar að standa undir þeim hagvexti sem við þurfum á að halda til þess að (Forseti hringir.) slá skjaldborg utan um velferðarkerfið, menntakerfið o.s.frv. Hefur hv. þingmaður ákveðna skoðun á þessari þróun og þá hvaða?