fjárlög 2022.
Frú forseti. Þetta var kostulegur tími rétt fyrir kosningar, mjög mikið af samningum sem þurfti að undirrita, mjög mikið af borðum sem þurfti að klippa og skóflustungur sem þurftu að eiga sér stað. Auðvitað á að girða fyrir þetta. Auðvitað er þetta ekkert annað en hluti af PR-herferð kosningamaskínunnar. Við tókum á þessu hvað snertir þingmenn síðasta vor þegar við samþykktum breytingar á reglum um það hvernig þingmenn geta fengið ferðakostnað endurgreiddan til þess að við sem vorum í kosningabaráttu sem sitjandi þingmenn hefðum ekki það forskot á fólk sem væri að berjast fyrir nýju þingsæti að við gætum látið hið opinbera borga allar ferðir fyrir okkur. Það er náttúrlega fáránlegt ef sitjandi þingmaður getur hoppað hvert á land sem er og bara sent Alþingi reikninginn og notað það í kosningabaráttu sinni. Þess vegna settum við tímamörk á það og auðvitað eigum við að gera sambærilegt gagnvart ráðherrum og þessum gjafapokum sem þeir ganga með um allar sveitir fyrir kosningar.