fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Mig langar að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir yfirgripsmikla ræðu um loftslagsmál og ýmiss konar réttindamál. Mig langar að byrja þar. Ég hjó eftir því að hann nefndi atvinnuleysistryggingar námsmanna sem námsmenn hafa verið að horfa til í langan tíma og óskað eftir að fá að sitja við sama borð og aðrir. Mig langar af því tilefni að minna á að til er svokallaður Atvinnuleysistryggingasjóður sem er fjármagnaður með tryggingagjaldi og eins og vegna annarra starfsmanna er gjald borgað vegna námsmanna og það fer síðan í Atvinnuleysistryggingasjóð. Það var á sínum tíma sjálfstæður sjóður en var síðan tekinn inn í ríkissjóð eins og margar aðrar sértækar greiðslur. Ég spyr hv. þingmann: Er ekki verið að hafa rétt af fólki sem hefur greitt í tiltekinn sjóð? Er ekki rétt að námsmenn fái í það minnsta hlutfallslegar bætur miðað við það sem greitt hefur verið í sjóðinn?