152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:11]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Málamiðlunin hjá okkur yrði aldrei sú að fara leið tímabundið sem hugsanlega festir í sessi óréttlátt kerfi. Þannig að fyrsta skrefið hjá okkur er að tímabinda samninga við útgerðina, tímabinda samningana um aðganginn að auðlindinni. Þetta er algjört lykilatriði og þetta er það sem umræðan um stjórnarskrána og auðlindaákvæði ríkisstjórnarinnar snerist um. En við skulum líka bara segja hlutina eins og þeir eru: Þessi ríkisstjórn hér er engin tilviljun. Það er út af því að þessi ríkisstjórn, undir forystu Vinstri grænna, mun sjá til þess að ekki verður hreyft við neinu í sjávarútvegi. Það verður ekki hreyft við neinu þegar kemur að auðlindum þjóðar. Þrátt fyrir öll fögru orðin í sáttmálanum verður ekki hreyft við neinu og það er hættulegt. Þess vegna vil ég brýna hvort sem er Samfylkinguna eða aðra stjórnarandstöðuflokka að halda ríkisstjórninni við efnið, spyrja óþægilegu spurninganna um það af hverju útgerðin borgar ekki meira í sameiginlega sjóði landsmanna. Og já, ég er alveg reiðubúin (Forseti hringir.) að skoða allar þær leiðir sem stuðla að því að það verði aukið réttlæti þegar kemur að gjaldtöku í sjávarútvegi. (Forseti hringir.) Núverandi kerfi gengur ekki upp. Það misbýður (Forseti hringir.) réttlætiskennd þjóðarinnar og við höfum sýnt það margoft, hvort sem það er í skoðanakönnunum eða annars staðar.