fjárlög 2025.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þó að ég skilji líka að það sé kannski ekki hægt að gefa ítarlegra svar á þessum stutta tíma. En við höldum áfram að ræða þetta hér í vetur. Úrræðin sem hæstv. ráðherra nefnir, félagsleg úrræði og kannski ekki síður barnavernd, koma gjarnan til kastanna þegar í óefni er komið. Mig langar aðeins að beina sjónum að því sem hefur kannski fyrst og fremst forvarnagildi og það er tómstunda- og íþróttastarf sem sýnt hefur verið fram á að hafi gríðarlega mikla þýðingu fyrir geðheilsu og félagslega færni barna. Nú er það svo að börn efnaminni foreldra og þeirra er standa höllum fæti félagslega eru ólíklegri til að sækja tómstunda- og íþróttastarf jafnvel þrátt fyrir að farið sé í ákveðna styrki og styrkveitingar þar að lútandi. Stendur til að fara í einhverjar aðgerðir til að stuðla að aukinni þátttöku þessara hópa umfram það endilega að lækka gjöld og annað, heldur aktíft að virkja þau?
Að lokum langar mig að spyrja út í aðgerðir (Forseti hringir.) sem eru fyrirhugaðar til að tryggja íslenskufærni barna, ekki síst barna af erlendum uppruna — og skjóta inn, ef ég má, hvort það (Forseti hringir.) standi til að bæta aðgengi barna að móðurmálskennslu þar sem færni í móðurmálinu okkar er forsenda þess að við getum lært önnur tungumál svo að vel sé.