fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur. Hér er hægt að gera betur. Hér er alltaf hægt að gera betur. Ef ég tek upp þráðinn aftur þá höfum við unnið nokkuð mikla vinnu í heilbrigðisráðuneytinu með lögregluyfirvöldum og með heilbrigðiskerfinu okkar í varðandi kynferðisofbeldi með ágætisárangri og við breyttum m.a. lögum hér á Alþingi í þá veru. Við höfum svolítið tekið það áfram gagnvart heimilisofbeldi og akkúrat þessum punkti sem hv. þingmaður kom inn á. Niðurstöðurnar og tillögurnar eru í skýrslu undir heitinu: Börn eru ekki litlir fullorðnir. Við viljum skima fyrir heimilisofbeldi þegar í leik- og grunnskólum með okkar frábæra heilbrigðisstarfsfólki, skólahjúkrunarfræðingum, og stíga inn í þetta. Ein tillagan er um nákvæmlega það sem hv. þingmaður nefndi og við köllum að loka hringnum, þ.e. að vinna með Barnaverndarstofu og lögreglu og heilbrigðiskerfinu til þess að láta upplýsingarnar flæða á milli og taka utan um barnið strax.