fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni. Þetta er stórt mál og mikilvægt, brýnt. Ég held að það hafi verið mjög góð ráðstöfun að setja áhersluna á börnin með því að setja á laggirnar Geðheilsumiðstöð barna í tengslum við heilsugæsluna. Þar höfum við tvöfaldað mannauðinn, starfskraftinn, og þar eru samt sem áður biðlistar að aukast. Tilvísunum hefur fjölgað mjög mikið og miklir biðlistar hafa myndast þar, sérstaklega þegar kemur að greiningum varðandi ADHD og bið eftir þeim. Nú var að birtast rannsókn í gær sem dregur fram þá þversögn að við höfum afkastað nokkuð mikið í greiningu ef miðað er við þær meðferðir sem snúa að lyfjanotkun og ef við berum okkur saman við Norðurlöndin. Við erum búin að vera með í ár grænbókarvinnu þegar kemur að þessum þætti og hún er á lokametrunum en við erum mjög meðvituð um að við verðum að skoða aðra þætti þessu tengda. Auðvitað kemur það inn á það sem hv. þingmaður er að tala um en auðvitað er það á fjölmörgum öðrum sviðum sem við þurfum að sinna geðheilbrigði barna og líðan barna. Aðrir þættir eru t.d. þau skilmerki sem gilda þegar fólk fær greiningu og úrræði sem við erum með önnur til stuðnings, t.d. í skólakerfinu. Þannig að við erum að skoða alla þessa aðra áhrifaþætti á þennan þátt málsins.