155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:39]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessar spurningar. Varðandi þessa þætti sem þingmaðurinn nefndi sérstaklega þá eru okkar leiðir til að fylgja þessu eftir og leggja á áherslu og vinna í samstarfi við vini og bandamenn auðvitað fyrst og fremst í gegnum ýmiss konar svæðisbundið samstarf þar sem þetta er alltaf á dagskrá og í gegnum alþjóðastofnanir þar sem þetta er með mismunandi hætti á dagskrá. Það er til að mynda enn verið að vinna að því, en er mjög flókið, með hvaða hætti við finnum út úr því að geta dregið menn til ábyrgðar fyrir það sem þeir hafa gert. Í okkar svæðisbundna samstarfi, hvort sem það er Eystrasaltsráðið, NB8-samstarfið, Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin, Norðurlandasamstarf o.s.frv., þegar við ræðum málefni Úkraínu, þá eru það þessi atriði sem eru þar helst á dagskrá. Auðvitað eru síðan ríki í tvíhliða samstarfi ýmiss konar með Úkraínu sem við getum með ýmiss konar hætti stutt og höfum gert og þurfum að gera áfram. Það kostar sannarlega fjármuni og það kostar líka pólitíska vinnu af hálfu stjórnmálamanna, af minni hálfu og annarra, og sömuleiðis af hálfu kerfisins.

Varðandi tjónaskrána þá er hún sem betur fer í fullri vinnslu og gengur þokkalega. Við erum áfram, myndi ég segja, nokkuð leiðandi í þeirri vinnu. Þetta var gríðarlega mikilvægt skref á sínum tíma og sem betur fer staðnaði það ekki eftir það heldur er það í fullri vinnslu að koma skránni á laggirnar og verið að skrá og fylgja þessu eftir. Það er í raun dæmi um fyrstu alvöruákvörðunina og skrefið sem var tekið þegar kemur að því að draga Rússland til ábyrgðar fyrir það sem það er að gera.