157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:37]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína ágætu yfirferð. Það er tvennt sem mig langar kannski að byrja á að spyrja hann um. Það er varðandi eflingu starfsemi úti um landið og á landsbyggðinni, annars vegar á háskólastiginu og hins vegar á menningarsviðinu. Nú erum við að setja gríðarlega fjármuni í mörg menningarverkefni sem eru mörg hver keyrð hér á höfuðborgarsvæðinu, eins og Þjóðleikhúsið, sem á nú að fara í framkvæmdir við, og óperan og margt annað sem við erum að keyra. Maður verður kannski minna var við að þessi starfsemi fari mikið um landið, í að byggja upp þar. Það hefur oft verið strögl í heimahéraði hæstv. ráðherra, með Hof og annað slíkt. Hver eru áformin um frekari menningarhús og að menningarstarfsemi fari um landið þannig að hún dreifist svolítið og auki aðgengi landsmanna?

Hv. þingmaður kom líka aðeins inn á uppbyggingu háskólanna úti um landið. Nú var Hólaskóli einmitt kominn í samstarf við Háskóla Íslands. Ég tel gríðarlega mikilvægt að þau byggingaráform sem þar eru komin af stað, og hafa verið fjármögnuð í síðustu tvennum fjárlögum, haldi áfram. Það er sérstaklega mikilvægt núna til að það verði trú á þessum samstarfsverkefnum háskólanna, að Háskóli Íslands éti ekki allt og flytji það hingað á mölina. Það væri gaman að fá nánari útskýringar á stöðu þeirra mála.