fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Sem gamall sveitarstjórnarmaður þá er ég nú ekki viss um þetta, þá hefur a.m.k. breyst umræðan ef sveitarfélögin eru að kalla á fleiri málaflokka til sín. Reynslan er ekki alltaf góð af því. Þetta er áhugaverð hugmynd en hún er ekki svona einföld. Við erum að gera þetta, við erum að reyna þetta, við erum að gera menningarsamninga og við erum að fara með einstök verkefni út á land og reynum að dreifa því ekki of vítt vegna þess að við þurfum að eiga svona ákveðna þyngdarpunkta á Norðurlandi, Vestfjörðum, Suðurlandi og Austurlandi í staðinn fyrir að setja nokkrar krónur úti um allt. Það er skilvirkara. Ég veit að það er ekki endilega óumdeilt heldur. Hins vegar þá er þetta miklu fjölbreyttari vefnaður heldur en svo að það sé bara hægt að henda peningum út. Við þurfum sem þjóð með sjálfsmynd að eiga okkar landsbókasafn, eiga okkar þjóðleikhús, eiga okkar sinfóníu og óperu og annað slíkt til að geta verið þjóð meðal þjóða og eðlilega þá er það best staðsett hér þannig að við þurfum að gera bæði en ekki annaðhvort.