fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr hvort ég telji tilefni til að breyta rammalöggjöfinni. Já, það er auðvitað þannig að við erum að koma inn í þingið með tvö lagafrumvörp sem snúast um það. Fyrra frumvarpið snýst um almennar breytingar til að auka skilvirkni. Hitt frumvarpið snýst annars vegar um vindorkuverkefni og staðsetningu þeirra í þessu rammaáætlunarkerfi en það snýst líka um ákveðnar breytingar sem við teljum skynsamlegt að gera á verndarflokki rammaáætlunar. Frá því að lögin um rammaáætlun voru sett árið 2012 hafa engin svæði í verndarflokki verið friðlýst með lögmætum hætti, með lögformlega bindandi og réttum hætti. Þá held ég, þegar þetta liggur fyrir, að það sé rétt að staldra aðeins við og velta fyrir sér verndarflokknum. Í rammaáætlun hafa farið fram miklar rannsóknir á einmitt þeim verndarhagsmunum og verndargildi þeirra svæða sem eru undir. Þetta eru þaulrannsökuð svæði, eins og t.d. Héraðsvötnin þar sem koma fram mjög afgerandi sjónarmið um verndargildi þessara svæða, þetta eru búsvæði fugla og þetta er einstakt á lands- og heimsvísu, en á það svo bara að vera einhvern veginn hlutverk ráðherra eftir að þingið samþykkir þetta í verndarflokk rammaáætlunar, ef svo bæri undir, að vernda þetta svæði gegn orkuvinnslu en engu öðru? Má byggja baðlón þarna? Það eru svona spurningar sem hljóta að vakna, þannig að ég held að við þurfum að hugsa þetta miklu betur og ég hlakka til að koma inn í þingið og ræða þetta við hv. þingmenn um samspilið milli náttúruverndarlaga og rammaáætlunarlaga hins vegar.
Svo er það hitt, af því að það var verið að tala um þessa vatnsaflskosti, m.a. kosti sem eru metnir gríðarlega hátt út frá verndargildi, eins og Héraðsvötnin, þá er ég engu að síður á þeirri skoðun (Forseti hringir.) að það sé rétt að bíða aðeins með að setja þá í verndarflokk í eitt skipti fyrir öll meðan við erum að fara yfir þróunina þegar kemur að orkujöfnuði í landinu, skoða vænt framboð með hliðsjón af því hvert við viljum fara sem samfélag, (Forseti hringir.) í hvernig verðmætasköpun við viljum ráðast og þetta þarf að harmónera við vinnuna sem er í gangi varðandi atvinnustefnu.