staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa ræðu. Mér fannst hann fanga ágætlega í orðum sínum í hvaða yfirburðastöðu ríkið var gagnvart kirkjunni þegar kirkjujarðasamkomulagið var gert, þ.e. að það skyldi vera gert samkomulag án þess að það væri tilgreint nákvæmlega hvað um væri að ræða. Ég er viss um að verðið hefði líka verið umdeilanlegt á sínum tíma. En það er tvennt sem mig langar að spyrja hv. þingmann um. Í fyrsta lagi: Ef honum finnst það sniðugt að bera kirkjarðasamkomulagið saman við RÚV, eigum við þá að kippa kirkjunni út af auglýsingamarkaði? Í öðru lagi: Þar sem hv. þingmaðurinn sagði að það þyrfti að aðgreina eignir frá áður en samið væri áfram, er þá hv. þingmaður að tala um eignaupptöku? Vill hann sem sagt hirða eignir þær sem voru í kirkjujarðasamkomulaginu með eignaupptöku? Mig langar að hann varpi ljósi á þetta tvennt.