staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Herra forseti. Þetta er býsna góð spurning. Nú man ég ekki orðalagið en það stendur í lögum um opinber fjármál að það megi einmitt ekki gera samninga sem eru ekki með ákveðin viðmið um gæði og þess háttar, sem í rauninni mætti ætla að sé m.a. til þess gert að koma í veg fyrir að ríkið gangist undir samninga sem eru því óhagkvæmir. Við höfum margoft rætt það í þessum sal að það er alveg fullkomlega eðlilegt að ríkið og Alþingi taki stundum ákvarðanir um að styðja fjárhagslega við málefni á pólitískum grunni. En að gera það í gegnum svona veikburða samning sem myndi ekki standast lög ef hann væri gerður í dag — að því er ég best skil, að vísu er ég ekki lögfræðingur — er bara vond leið til þess að vinna. Auðvitað ættum við að reyna að vinda ofan af slíkum (Forseti hringir.) vinnubrögðum og reyna að semja upp á nýtt eða binda enda á þennan samning þannig að þetta geti breyst í pólitískan stuðning, ef við viljum það.