kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Myndi hv. þingmaður fallast á frumvarpið? Hv. þingmaður sem hér stendur myndi klárlega skoða það. Það fer bara eftir því hvaða breytingar og hvernig útfærslan er, það er nákvæmlega það sem ég var að segja hérna áðan. Þetta snýst um útfærsluna á frumvarpinu. Það er það sem ég hef verið að gagnrýna og við, hvernig er verið í raun og veru að útfæra þessa hugmynd sem ég er í eðli mínu ekki mótfallinn.
Varðandi rafbílana og það frumvarp til laga sem eru í gildi núna þá lítur það kannski öðruvísi við hvað varðar bílaleigurnar. Þeir eru ekki svo stór hluti hjá bílaleigunum. Gagnrýnin á gildistímann er aðallega vegna bílaleiganna sem var kannski minna áríðandi varðandi rafmagnsbílana þar sem svo lítill hluti er í leigu. En ég er hins vegar alveg sammála því og tek undir það með hv. þingmanni að auðvitað hefði verið miklu betra að aðdragandinn væri lengri og við eigum bara almennt í lagasetningu að venja okkur á það að reyna að vera með lengri aðlögunartíma (Forseti hringir.) fyrir fólk og fyrirtæki í landinu, sérstaklega ef um er að ræða svona skattbreytingar eða íþyngjandi breytingar.