störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í síðustu viku ræddum ég og hv. þm. Jón Gunnarsson um innheimtu- og fjármálafyrirtæki. Mál okkar vakti athygli og ótrúlegur fjöldi fólks hafði samband við mig og hv. þingmann, en margir eiga um sárt að binda eftir viðskipti við þessar stofnanir. Fólkið í landinu hefur ekki komist upp með það sem fjármálafyrirtækin hafa komist upp með, að hunsa niðurstöður dómstóla, og ekki komist upp með að borga ekki skuldir sínar.
Fjölmiðlar fjölluðu um mál hv. þm. Jóns Gunnarssonar en þar var ekki rætt um málefnið. Látið var að því liggja að tengsl væru á milli fyrirtækisins og hv. þingmanns, varhugaverð, vegna stuðnings fyrirtækisins við þingmanninn um 50 þús. kr. í prófkjöri sem hann tók þátt í fyrir síðustu kosningar. Við flest hér inni fengum stuðning frá fjölmörgum fyrirtækjum og allir þingmenn hafa gert þann stuðning upp við ríkisskattstjóra og þar liggja þær upplýsingar klárlega fyrir. En enn og aftur ganga fjölmiðlar fram fyrir skjöldu og kynda undir bál dylgna um spillingu og vantraust í þjóðfélaginu þegar vakin er athygli á hagsmunum einstaklinga í samskiptum sínum við innheimtustofnanir og lánastofnanir.
Virðulegi forseti. Er óeðlilegt að álykta svo að fjölmiðlar sem þannig gangi fram taki hagsmuni fjármálafyrirtækja fram yfir hagsmuni einstaklinga? Í þessu tilfelli var umræðan afvegaleidd og í stað þess að ræða málefnið var farið í þingmanninn og hann gerður ótrúverðugur í fjölmiðlum. Ég spyr: Fyrir hverja vinna slíkir fjölmiðlar?