157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:56]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir andsvarið. Samkvæmt samgönguáætlun erum við að fara í viðamiklar framkvæmdir víða um land og það er auðvelt að lesa þá áætlun til að kynnast því hvernig við ætlum að bretta upp ermarnar í jarðgangagerð, vegalagningu, laga einbreiðar brýr og breikka þær o.s.frv. Sá sem hér stendur er alveg tilbúinn að skoða fleiri leiðir til að gera meira í þessum efnum. Ég held að það sé ein hagfelldasta leiðin til að bæta starfsskilyrði fyrirtækja úti á landi, og jafnvel þeirra fyrirtækja sem eiga eftir að bætast við þar, að auka samgöngur. Þess vegna er ég tilbúinn að leggjast á árarnar með hv. þingmanni og finna fleiri leiðir til að bæta í þá sjóði til þess að við getum bætt viðhald, aukið heilsársþjónustu og farið í nýframkvæmdir sem víðast hvar á landinu. Samkvæmt samgönguáætlun á að fara í viðamiklar framkvæmdir víða úti á landi. Ég get nefnt Vestfirði, ég get nefnt Siglufjörð og Fljótagöng og nokkra þætti austur á landi til þess einmitt að auðvelda fyrirtækjum að flytja vörur sínar á markað og koma aðföngum í hús. Ég get nefnt sem eitt lítið dæmi breikkun brúarinnar yfir Sléttuá í Reyðarfirði sem mun þýða stórkostlegar framfarir fyrir atvinnurekendur á því svæði sem vel að merkja útvega 25% af okkar útflutningstekjum, í þeirri ágætu Fjarðabyggð sem þar er að finna. Ég vil skoða allar þær leiðir sem við höfum til að fara í þessi verkefni sem geta ekki beðið lengur og nota e.t.v. fleiri leiðir til þess en nú þegar virðast vera ljósar.