réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Herra forseti. Ég þakka fyrir að þetta mál skuli nú fá þinglega meðferð í þriðju atrennu. Auðvitað er maður óþolinmóður gagnvart því að þetta mál fái hraða afgreiðslu en þar sem við Miðflokksfólkið aðhyllumst vönduð vinnubrögð föllumst við náttúrlega á það að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar enda er skýr áskilnaður um að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra flytji frumvarp byggt á þessu frumvarpi á næsta haustþingi. Ég trúi því og treysti að hæstv. ráðherra muni nota þann tíma sem honum og ráðuneyti hans gefst nú til þess í fyrsta lagi að eiga samráð á vormánuðum við þá sem að þessu máli koma, noti síðan sumarið til frumvarpsgerðar og komi hingað með frumvarp í byrjun næsta haustþings þannig að við getum samþykkt þetta mál til gæfu fyrir aldraða fyrir árslok árið 2020.