breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Já, ég tek bara undir með hv. þingmanni. Það geta komið upp þær aðstæður, og ég held að við séum meðvituð um það bæði ég og hv. þingmaður, að það sé bara eitthvað ófyrirséð, að það þurfi að afgreiða eitthvað í gegnum þennan sal með einhvers konar afbrigðum og jafnvel að það fari ekki í þrjár umræður og eitthvað slíkt af einhverjum mjög nákvæmlega tilgreindum ástæðum. En ef ástæðan er feluleikur þá telur það ekki.
Það er fleira og ég átti hér samtal við forseta og þingmenn í gær og hef gert hér í dag. Þetta er ekkert eina dæmið um eitthvað sem líklega stenst ekki, þ.e. þessi reikniregla sem tekin er hér frá ESB til að innheimta af losun bifreiða. Það er bara sami bíllinn; þrír aðilar kaupa nákvæmlega eins bíl, skrá hann með nokkurra mánaða millibili og fá mismunandi útreikninga á kolefnislosun. ESB beindi því sérstaklega til EFTA-ríkjanna að þessa aðferð mætti ekki nota til skattheimtu. Nú er búið að benda á þetta ítrekað. Ég er búinn að gera það nokkrum sinnum. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason er búinn að gera það nokkrum sinnum. Þingið hefur svarað og svarið var svo sem fyrirséð: Auðvitað má þingið í fullvalda þjóð gera það sem það ætlar að gera. En þetta er að gerast af hendi stjórnvalda sem þrá ekkert heitar en regluverk Evrópusambandsins. Þarna er ESB að segja hvernig eigi að gera þetta en nú ætla þau að handvelja hvaða tilskipanir frá ESB þau vilja notast við. Við erum hér, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, í fleiri en einu máli að eiga við vinnubrögð sem eru bara ekki boðleg.