157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:30]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Örstutt aftur að þessum sparnaðartillögum sem óskað var eftir — 10.000, segir hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir. Ég held að það láti mjög nærri. Hins vegar hefur hæstv. forsætisráðherra sagt, aðspurð um af hverju fleiri tillögur hafi ekki verið nýttar, að þær hafi einfaldlega verið of pólitískar. Hvað eru fjárlög ef ekki pólitík? Þú getur skrifað flottar greinar, sagt fallega hluti, haldið skemmtilegar ræður á þorrablótum og talað um alls konar. En má ég sjá fjárlögin þín? Þá veit ég hvað þú ert að meina.

Varðandi hitt málið, það er hins vegar dálítið snúið. Ég held, hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, að fyrir það fyrsta hafi ráðherra ekki þorað að koma fram með þetta, ég held að það sé raunverulega ástæðan. En það hvernig þetta var gert hins vegar — nú er ég ekki með það mikla þingreynslu, ég bara veit ekki nákvæmlega hvað er eðlilegt að gera þegar svona kemur upp. Þetta mál þarf að fara í eitthvert formlegt ferli. Það þarf að setja eitthvert ferli af stað, einhverja verkferla sem þingið býr yfir, til að skoða hvort þessi málsmeðferð hreinlega gangi upp og sé hreinlega leyfileg. Ég þori ekki að fullyrða það en einhvern veginn er mín tilfinning sú að þetta gangi ekki bara í berhögg við hefðir, þetta gæti hugsanlega gengið í berhögg við fleira en hefðir, jafnvel bara það regluverk og þá verkferla sem slíku máli er ætlað að fara í gegnum.