157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

tekjur og gjöld ríkissjóðs.

[10:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka í fyrsta lagi hv. þm. Sigríði Andersen fyrir spurninguna. Ég hlakkaði mjög til að svara henni vegna þess að ég gat svarað henni með einu orði en svo bætti hún við spurninguna. En fyrri liðnum get ég svarað með nei. Þegar kemur að þingsköpum og beitingu þeirra þá er ég auðvitað ekki einn af hinum kjörnu fulltrúum og er ekki viss um að það sé endilega ástæða til að spyrja mig, ólöglærðan manninn, um réttlætingu á þingsköpum. Það er einhver annar betur til þess fallinn. Í sjálfu sér mætti líka varpa spurningunni fram með þeim hætti hvort ástæða hafi verið til að gera eins mikið mál og raun ber vitni úr breytingum sem voru kannski, eftir á að hyggja, ekki eins stórfenglegar og ætla mætti af þeim fjölmörgu og ítarlegu ræðum sem fluttar voru á Alþingi í umræðu um málið í vor.