tekjur og gjöld ríkissjóðs.
Virðulegur forseti. Ég hygg að þetta sé í annað sinn á innan við viku sem ég heyri hæstv. fjármálaráðherra svara spurningum um efnahagsmál og stjórnmál á þá lund að hann sé ekki kjörinn fulltrúi, hann sé í raun ekki stjórnmálamaður og að þetta sé spurning sem þeir sem hér sitja þurfi að velta fyrir sér. Ég gef nú lítið fyrir slík svör og tel málefnalegra að hæstv. ráðherra velti þessu fyrir sér vegna þess að hann ber auðvitað ábyrgð á efnahagsmálunum hér.
Mig langar líka í framhaldinu að spyrja um nýtt mál sem komið hefur upp vegna þess að afgreiðsla fjárlaga og bandorms hefur verið með miklum ólíkindum og lítið verksvit í þeirri verkstjórn sem viðhöfð er hér. Menn eru á handahlaupum að reyna að átta sig á miklum áhrifum á bæði skuldasöfnun ríkissjóðs og heimila af þeim málum sem hér liggja fyrir. Í morgun kom Seðlabankinn fyrir hv. velferðarnefnd og leggst hann hart gegn breytingum á lögum um hlutdeildarlán og varaði við því, (Forseti hringir.) nánast hótaði því, að ákvarðanir peningastefnunefndar um mögulegar vaxtalækkanir, vaxtaákvarðanir, (Forseti hringir.) myndu taka mið af þessu frumvarpi verði það samþykkt á þessu þingi óbreytt eins og það liggur fyrir. (Forseti hringir.) Hefur hæstv. fjármálaráðherra skoðun á þessu?