kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Við erum að ræða hér kílómetragjald. Ríkisstjórnin er svona vel eftir vonum. Við erum að fara úr einföldu kerfi í flókið kerfi. Við erum að fara úr kostnaðarlitlu kerfi í kostnaðarsamt kerfi. Við erum að fara úr því að innheimta hjá fjórum eða fimm gjaldendum í það að innheimta hjá yfir 200.000 gjaldendum. Tólf gjalddagar á ári, tvær og hálf milljón gjalddaga á ári, úr örfáum gjaldendum. Við erum að fara úr einföldu eftirlitskerfi í mjög flókið eftirlitskerfi. Við erum að flækja fólk í álestri, eftirliti, leiðréttingum, endurgreiðslum — ekkert nema fyrirhöfn. Þetta kemur illa við ferðaþjónustuna, frú forseti. Þetta kemur illa við bifreiðaeigendur. Þetta kemur sér illa fyrir venjulegt fólk.