kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Við greiðum atkvæði um 5. og 6. gr. Það er annars vegar undanþága frá greiðslu, þ.e. þegar ökutæki fara tímabundið af landi brott — og það er bara algjörlega óljóst í núverandi kerfi sem hefur að einhverju leyti gengið ágætlega en að mörgu leyti líka bent okkur á annmarkana. Margir þeir sem fara með Norrænu á ferðalag um Evrópu og koma svo til baka lenda í miklu veseni með að skrá þetta. Ef þau gleyma því þá fá þau ekki kílómetrana sem þau óku erlendis niðurfellda. Ef þau skila þessu inn á einn hátt og fá þetta þá niðurfellt — en ef þau gera það alveg eins næst þá fá þau það ekki og þurfa að senda tölvupóst á [email protected]. Þetta er þetta frábæra kerfi. Hins vegar er í 6. gr. sagt hvert verðið eigi að vera. Það er í 29 gjaldaliðum. Það sýnir flækjustigið í þessu. Guð hjálpi okkur.