157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:38]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Ég vil taka það fram að við erum að koma með kerfi í staðinn fyrir kerfið sem er til. Í því kerfi eru ekki mjög margir aðilar sem eru undanþegnir; fornbílar greiða t.d. bara sín olíugjöld á dælu eins og allir aðrir. Það þótti ekki ástæða til að fjölga þeim aðilum sem eru í dag undanþegnir greiðslu fyrir viðhald og notkun á vegakerfinu.

Síðan langar mig að nefna vegna allra þessara gjaldaliða sem þarna eru að þarna er gerð góð tilraun til þess að reyna að meta hver raunverulegur kostnaður er af notkun hvers og eins bíls á vegakerfinu. Ég held að sá rökstuðningur sem þar er að baki sé nokkuð góður.