157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[15:50]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er rétt að halda því til haga að þetta mál sem við greiðum nú atkvæði um er hingað komið fyrir tilstilli og baráttu hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, Ingu Sæland og Flokks fólksins. Um var samið í stjórnarmyndun að koma í veg fyrir að þessi eingreiðsla, sem hefur skipt tugi þúsunda miklu máli, félli niður. Við erum að rétta okkar minnstu bræðrum og systrum hjálparhönd í nafni kærleikans og vonum að sú hjálparhönd geri þeim kleift að halda jól með sama hætti og aðrir. Frumvarpið tryggir að þeir sem minnst hafa á milli handanna njóti raunverulegs ávinnings. Þannig er tekjuviðmiðið í frumvarpinu og það þýðir að jólabónusinn fer til þeirra sem mest þurfa á aðstoð að halda.