157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[15:52]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um gríðarlega mikilvægt mál hér, eingreiðslu til þeirra sem minnst hafa í samfélaginu. Ríkisstjórnin er búin að leggja fram mörg mál sem styðja við nákvæmlega þá hópa sem þurfa á stuðningi að halda og það er virkilega ánægjulegt að koma hér og fylgja þessu máli eftir alla leið. Þessi greiðsla kemur til viðbótar við desemberuppbótina sem er í lögum og er auðvitað gríðarlega mikilvæg fyrir þennan hóp. Hún er eins og áður undanþegin skatti og hefur ekki komið til skerðingar hjá fólki og hefur verulega mikil áhrif hjá fólki sem hana fær. Nú er jafnframt ekki bara verið að tala um málefni öryrkja heldur einnig ellilífeyrisþega og þá hópa sem tekjulægstir eru úr þeim hópum og þurfa svo sannarlega stuðning inn í hátíðarnar.