157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[15:53]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þingflokkur Framsóknar styður þetta mál núna hvað varðar eingreiðsluna. Hér er verið að koma til móts við veikasta hópinn í samfélaginu en eins og komið hefur fram eru það nú samt sem áður líka einstaklingar sem eru eignamiklir sem fá úthlutun af þessu fjármagni í ár. Við viljum því setja fyrirvara og brýna ríkisstjórnina til þeirra verka að einmitt þegar um takmarkaða fjármuni er að ræða renni þeir skilmerkilega til þeirra sem raunverulega þurfa á þeim að halda og þar sem þeir nýtast hvað best, á næsta ári verði jafnvel farið í þá vinnu að greina þennan hóp og þá frekar útbúa þannig hlutina að þessir einstaklingar og hópar geti þá fengið jafnvel mánaðarlega, eða kannski bara tvisvar á ári, þá greiðslu og það sé þá betur unnið og skilgreint hverjir það eru sem raunverulega þurfa á greiðslum að halda til þess einmitt að fjármunir renni þangað sem þeir eiga best heima.