157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

markaðir fyrir sýndareignir.

228. mál
[16:17]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér er um að ræða mál sem hefur beðið eftir afgreiðslu nokkuð lengi og var á þingmálaskrá hæstv. fjármálaráðherra fyrir septembermánuð en er lagt hér fram seint um síðir í nóvember. Gildistaka í þessu frumvarpi er fyrirhuguð núna 1. janúar næstkomandi. Ég fæ ekki séð að hægt verði að hnika því vilji menn standast kröfur þessarar MiCA-reglugerðar sem þetta frumvarp byggist á. Það er alveg ljóst að menn bíða eftir afgreiðslu á þessu máli. Það að það komi hingað svona seint veldur því hins vegar að einhverjir sem starfa á þessum markaði hafa ekki getað undirbúið sig fyrir þann fyrirsjáanleika. Eins og nefnt hefur verið hér áður í meðferð kílómetragjaldsins hér þá er það þannig að fyrirtæki á markaði starfa eftir starfandi lögum. Það er bagalegt að þetta mál komi svona seint fram. Miðflokkurinn mun sitja hjá við afgreiðslu hérna í 2. umræðu en ég legg áherslu á það og tel að þetta mál gæti verið til framfara fallið fyrir þá sem starfa á þessum rafeyrismarkaði.