140. löggjafarþing — 48. fundur,  25. jan. 2012.

upplýsingalög.

366. mál
[17:24]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að flytja þetta mál. Það fékk töluverða umræðu í allsherjarnefnd í fyrra og augljóst að það mun fá mikla umfjöllun á vettvangi þingsins á næstu mánuðum enda er um afar viðamikið mál að ræða sem felur í sér margar breytingar.

Ég ætla ekki í þessu andsvari að koma nánar inn á efnisatriði frumvarpsins að öðru leyti en því að ég vil spyrja hvort ekki sé rétt skilið hjá mér að samkvæmt frumvarpstextanum verði fundargerðir ríkisstjórna aðgengilegar eftir 15 ár. Nú er um að ræða, minnir mig, töluverða breytingu frá því sem kom út úr meiri hluta allsherjarnefndar á síðasta þingi um þetta efni þar sem mig minnir að gert hafi verið ráð fyrir miklu styttri leyndartíma fundargerða ríkisstjórnarfunda. Ég vildi spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort það væri ekki rétt hjá mér að miðað við efni frumvarpsins væri gert ráð fyrir að ríkisstjórnarfundargerðir skyldu vera trúnaðarmál í 15 ár. Hljóðritanir eru reyndar trúnaðarmál í 30 ár eins og kveðið er á um í stjórnarráðslögunum ef til hljóðritana kemur, við sjáum til með það. En þarna er sem sagt gert ráð fyrir 15 ára trúnaðartíma en meiri hluti allsherjarnefndar gerði ráð fyrir því að sá tími yrði jafnvel bara eitt ár, minnir mig þótt ég hafi ekki gögnin fyrir framan mig.