157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.

[10:35]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Já, planið er að virka. Það var plan og það er að virka. Fimm vaxtalækkanir á einu ári. Lægsta verðbólga frá árinu 2020. Við erum að helminga hallann á milli ára. Hvað var í umræddu plani og hvað var í stjórnarsáttmála? Við erum að snarfjölga hjúkrunarrýmum, þetta er margföldun á þeim hjúkrunarrýmum sem voru í boði hér á vakt síðustu ríkisstjórnarinnar. Við erum að höggva á hnúta í orkumálum, í útlendingamálum, þegar kemur að öryggisvistunarúrræðum, mál sem er búið að tala um í áraraðir, áratug og stundum áratugi, er búið að leysa núna á innan við 12 mánuðum. Hvað sögðumst við ætla að gera í auðlindamálum? Við sögðumst ætla að fara í eðlilega og sanngjarna gjaldtöku sem snýr að því að koma hærri hluta af auðlindarentunni til þjóðarinnar.

Já, þessu fylgja sums staðar erfiðar ákvarðanir. Ekki með skattahækkunum heldur með breytingum á gjöldum, áætlanir sem m.a. voru í undirbúningi í áraraðir undir stjórn síðasta fjármálaráðherra sem sat fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Vitað var að það væri ekki hægt að standa undir viðhaldi á vegakerfi landsins nema eitthvert kerfi kæmi í stað olíugjaldakerfisins sem var við það að hrynja. Þetta veit hv. þingmaður vel en það er mjög vinsælt og mjög gaman að vera í minni hluta og bakka með allar ábyrgar tillögur vegna þess að hann þarf ekki lengur að svara fyrir þær.

Hvað erum við að gera? Við erum að setja 7 milljarða til viðbótar í viðhald vega á næstu árum, upp frá 13. Þetta eru stórar upphæðir. Fólkið í landinu mun finna fyrir því. Og já, í lok dags snýst þetta ekki bara um að banka upp á á hjá fólki. Þetta snýst um að ganga í verkin. Eftir þetta fyrsta ár höfum við undirbúið farveginn með þeim hætti að fólk mun finna tilfinnanlega fyrir því á vegum landsins og það mun finna fyrir því í buddunni. Við erum rétt að byrja.