hagstjórn og horfur í efnahagsmálum.
Frú forseti. Ég geri ráð fyrir að minni hlutinn gleðjist yfir því að vextir fari lækkandi, geri ráð fyrir að minni hlutinn gleðjist yfir að skuldir lækki og verðbólgan hafi ekki verið minni í fimm ár. Ég man eftir að hv. þingmaður talaði lengi vel á síðasta kjörtímabili um að við ættum ekki að tala Ísland niður, ættum ekki að tala stöðuna hér á Íslandi niður. Við skulum ekki tala niður það ástand að við séum að fara í eðlilegra jafnvægi. Það er ekki gott að vera í blússandi verðbólgu með útþanið kerfi og háa vexti. Við þurfum að ná betri stjórn á stöðunni. Þess vegna erum við í tiltekt. Þess vegna, já, erum við að ráðast í erfiðar aðgerðir, en ekki hvað, til að rétta af kúrsinn. Við þurfum ekkert tiltal hvað það varðar að taka erfiðar ákvarðanir. Það er víða verið að rífa í bremsuna en það er gert í þágu þjóðar vegna þess að við tökum hlutverk okkar alvarlega. Það stefnir mögulega í það að við komumst í betra jafnvægi og við eigum að fagna því. En auðvitað er það alveg rétt sem hv. þingmaður segir, verkin þurfa að tala. Við munum þurfa að standa undir því á komandi árum. (Forseti hringir.) Það er það sem reynir á núna.