tekjur og gjöld ríkissjóðs.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir aðra spurningu. Mér finnst pínulítið ósanngjarnt að vera sakaður um að hafa ekki svarað. Ég svaraði á skýrasta mögulega hátt, með einu orði, því sem sneri að spurningunni um efnahagsmál. Varðandi álit Seðlabankans á hlutdeildarlánum þá held ég að hann sé þar að rækja skyldur sínar af kostgæfni. Ég held hins vegar að þar gæti ákveðins misskilnings um rammann sem er utan um hlutdeildarlánakerfið. Það liggur fyrir í fjárlögum, og það hefur enginn heimild til að eyða peningum ríkisins án heimildar Alþingis, að ramminn er upp á 5,5 milljarða. Ég hygg að þingheimur sé nokkurn veginn sammála, alla vega margir flokkar, um að hlutdeildarlánakerfið hefur reynst ágætlega. Það þarf að bæta í það. Ég held að varúðarorð Seðlabankans snúist kannski frekar um það að ef slíkt kerfi yrði margfalt umfangsmeira þyrfti að hafa af því áhyggjur. En ekkert slíkt stendur til eins og staðan er og það veit þingheimur vel.