kílómetragjald á ökutæki.
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegur forseti. Hér hefur verið rætt aðeins úr hverju við erum að fara og í hvað við erum að stefna. Við erum að fara úr kerfi sem hefur gert það að verkum að vegirnir okkar hafa verið að grotna niður á síðustu árum og áratugum yfir í kerfi sem gerir okkur að einhverju leyti kleift að snúa vörn í sókn. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson talaði hér um að það væri gott fyrir stjórnarliða að hafa góða stjórnarandstöðu. Hluti af þessari stjórnarandstöðu var einmitt í stjórnarliðinu á þeim tíma sem þetta frumvarp var lagt fram og hugmyndafræðingur þessa kerfis var þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og hæstv. fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson. Ég skil ekki hvert við erum komin. Geta menn nú fundið aðeins gleði í hjartanu og staðið aðeins með þeim orðum sem þeir hafa látið falla hérna í gegnum tíðina?