kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða um ökutæki sem eru tímabundið hér á landi. Það er mjög flókin tafla hvernig það er. Hér koma mörg ökutæki til landsins, bæði til að stunda ferðaþjónustu eða þungaflutninga og til almennrar notkunar. Það er mjög erfitt að átta sig á því að í sumum tilfellum þá mun samkeppnisforskot þessara aðila vera miklu betra heldur en innlendra rekstraraðila ökutækja sem gera út dagsferðir, t.d. í safarí á bifhjólum og annað slíkt. Bara þetta atriði gæti fjölgað þeim sem fara að reka sín fyrirtæki bara erlendis, hvort sem það eru bílaleigur, ferðaþjónustu- eða afþreyingarfyrirtæki, til að fá greiða lægra gjald og vera samkeppnishæf við erlend fyrirtæki sem starfa hér á landi.