almannatryggingar.
Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um þetta ágæta mál. Ég ætla að nefna örfá atriði í þessu sambandi. Markmið og útreikningar þessarar eingreiðslu eru með þeim hætti að greiðslan komi betur til móts við þá tekjulægstu hópa sem eingreiðsluna fá. Það er markmiðið og þannig eru útreikningarnir. Ég ber ekki neinar brigður á að það að það kunna að vera einhverjir sem eru tekjuhærri sem fá þarna greiðslur en þessu er miðað að þeim tekjulægri. Varðandi þá sem búa hér á landi þar sem kostnaður hefur aukist verulega er mikilvægt að þessi greiðsla fari fram fyrir jól þar sem desember er gjarnan þungur og ekki síst fyrir þá sem minnst hafa úr að spila.