endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur boðað umfangsmiklar breytingar á þessu styrkjakerfi er varðar kvikmyndagerð. Miðflokkurinn bíður, ábyggilega eins og fleiri, spenntur eftir að sjá þær tillögur. Ég vil nefna það hér að það hefði, af því að tíminn var nú nægur, verið heppilegt að þessar breytingar hefðu verið kynntar að minnsta kosti í haust eða seint á síðasta þingi þannig að þær gætu tekið gildi hér núna um áramótin, en það er ekki. Í ljósi áforma um að endurskoða þetta kerfi frá grunni þá situr Miðflokkurinn hjá í þessu máli.