breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.
Forseti. Ég þakka hv. 11. þm. Reykv. n. kærlega fyrir spurninguna. Hann velti fyrir sér breytingum á gjöldum vegna bifreiða og ég held að þeim breytingum sem verið er að boða í þessu frumvarpi sé ætlað að breikka skattstofna vörugjaldsins en við vitum öll að tekjur af vörugjaldi hafa dregist mjög hratt saman á síðustu árum. Við hljótum öll að vera mjög meðvituð um það að við getum ekki verið hér með einhvern hluta af bílaflotanum okkar, sem nota bene stækkar mjög hratt, sem tekur engan þátt í kostnaði við vegakerfið, þegar við erum meðvituð um það að hér þarf að gera betur. Það þarf að laga vegi hvort sem er hér á höfuðborgarsvæðinu eða þjóðvegi landsins, okkur vantar fleiri tvíbreiðar brýr, kallað er eftir göngum o.s.frv. Það er því verið að breikka skattstofna til þess m.a. að sinna þessum verkefnum. Á sama tíma er inni í þessu hvati, það er reynt að búa til hvata í kerfinu til að fólk stígi inn í hreinorkubíla, það er markmiðið.
Hv. þingmaður spyr út í skatta sem ná til áfengis, tóbaks og annars, þessa 7,7% hækkun. Þá vil ég nú kannski minna á að þessi gjöld hafa verið óbreytt frá árinu 2019 og hafa rýrnað að verðgildi. Heilt yfir eru þau að rýrna að verðgildi þrátt fyrir þá hækkun sem hér er verið að boða.