Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

meðferð einkamála o.fl.

278. mál
[20:54]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Þetta frumvarp hefur tekið mjög svo ánægjulegu breytingum. Ég ætla ekki að lengja mjög umræðuna en bara árétta það sem fram kom í máli framsögumanns nefndarálits, að búið er að fella út 12. gr. frumvarpsins, og var það mér mikið hjartans mál að umrætt ákvæði yrði fellt út úr lögunum. Þar var lagt til að ef óskað væri eftir framlengingu gæsluvarðhalds og slík krafa væri tekin fyrir af dómara áður en gæsluvarðhald rynni út þá félli það ekki niður meðan á slíkum fresti stæði. Það var nauðsynlegt að fella þetta ákvæði úr frumvarpinu og samþykkja það ekki þannig að það yrði alls ekki að lögum, enda myndi maður ætla að það gengi bæði gegn stjórnarskrá Íslands og alþjóðalögum sem við erum aðilar að að halda fólki í gæsluvarðhaldi án úrskurðar dóms á meðan dómari hugsaði sig um. Það eru skýr ákvæði í lögunum um það undir hvaða kringumstæðum má halda fólki. Það má halda fólki í 24 klukkustundir áður en tekin er ákvörðun um að fara í gæsluvarðhald en þegar 24 klukkustundir eru að líða þá verður að krefjast gæsluvarðhalds eigi að halda viðkomandi inni áfram. Ég leit svo á að það gengi alls ekki að bæta við 24 klukkustundum eftir þann tíma sem úrskurðaður hefur verið og fagna ég því að þetta ákvæði hefur verið fellt út og verði þar með ekki hluti af þeim ákvæðum sem eru samþykkt hér og verða vonandi að lögum síðar í vikunni.

Að öðru leyti styð ég þetta mál og styð þessa breytingu heils hugar enda er hún gagnleg.