breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Við erum að ræða hinn svokallaða bandorm sem er skattahækkunarfrumvarp að þessu sinni, eins og því miður svo oft áður, en sérstaklega er núverandi ríkisstjórn áhugasöm um skattahækkanir þannig að þessi bandormur, þetta samansafn lagabreytinga sem við ræðum nú, dugar ekki til. Við eigum von á fleiri svokölluðum bandormum því að slík er skattaþrá þessarar ríkisstjórnar að hún heldur áfram, og það jafnvel eftir að umræða var hér hafin, að bæta við skattahækkanaáformum. Þetta er auðvitað í algjörri mótsögn við yfirlýsingar og fyrirheit stjórnarflokkanna, einkum og sér í lagi Viðreisnar og Samfylkingarinnar, fyrir kosningar. Beitt hefur verið, ekki bara í þessari umræðu heldur í aðdragandanum, ýmsum ráðum, allsérkennilegum, oft og tíðum, til að endurskíra skattahækkanirnar, fela skattahækkanirnar með því að kalla þær nýjum nöfnum en það er mjög í samræmi við nálgun núverandi ríkisstjórnar að lýsa einu yfir og gera svo eitthvað allt annað.
Í mörgum þeirra atriða sem heyra undir þetta skattahækkunarfrumvarp er þó ljóst, eða má ljóst vera skulum við segja, að ávinningur ríkisins og samfélagsins af áformunum verði lítill eða jafnvel neikvæður. Núverandi ríkisstjórn hefur, að því er virðist, ekki kynnt sér hvernig skattahækkanir virka þegar þær eru umfram það sem er til þess fallið að skapa verðmæti, þ.e. þegar skattahækkanir eru orðnar þess eðlis að þær eru farnar að draga úr verðmætasköpuninni, draga úr höfuðstólnum sem síðan er skattlagður. Þetta er hin margfræga Laffer-kúrfa sem ríkisstjórninni virðist þó ekki vera alveg kunnugt um eða hafi hún hugsanlega einhvern tímann kynnt sér þetta hefur hún gleymt því nú í framkvæmd. Við eigum því ekki von á að skattahækkanaáformin muni skila mjög verulega auknum tekjum til ríkisins en engu að síður munu þessi áform draga mjög verulega úr verðmætasköpun. Það er það sem er sameiginlegt með mörgum þessara áforma að þau hafa svo neikvæð áhrif á þróun efnahagslífsins og verðmætasköpun.
Þetta vildi ég undirstrika, frú forseti, hér hugsanlega við lok þessarar umræðu, þegar hillir undir lokin, að það er svo mikilvægt að huga að því hver verða raunveruleg langtímaáhrif þeirra aðgerða sem stjórnvöld ráðast í og langtímaáhrif, heildaráhrifin, af þeim áformum sem hér hafa verið kynnt og við ræðum nú og munum greiða atkvæði um næstu daga. Þau eru ekki æskileg, ekki fyrir ríkissjóð og ekki fyrir samfélagið. Þau eru sannarlega ekki liður í því að auka á verðmætasköpun, að gera verðmætasköpunarhaustið sem hér var boðað að raunveruleika, hvorki þetta haust né það næsta.
Að því sögðu, frú forseti, segi ég þetta gott af umræðu um þennan fyrsta bandorm. En eins og ég gat um hér í upphafi þá eru fleiri á leiðinni og ég mun þurfa að tjá mig töluvert um það.