148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

tannlæknaþjónusta við aldraða og öryrkja.

[13:57]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir þessi skeleggu og góðu svör. Svo sannarlega ætla ég að líma á mig brosið og vera bjartsýn og vona fyrir hönd allra þeirra sem einmitt hafa vegna efnahags ekki getað veitt sér þá heilbrigðisþjónustu, sem ætti að vera almenn og eðlileg, að hægt verði að leita tannlæknis. Byrjum á að semja við Sjúkratryggingar, hæstv. heilbrigðisráðherra. Til er ég.