148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

ný vinnubrögð á Alþingi.

[14:43]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og þakka málshefjanda. Þessi umræða kemur á mjög góðum tíma vegna þess að við erum núna stödd á þeim stað að hér eru mál undirbúin og afgreidd í miklum flýti út af aðstæðum sem hér ríkja. Það er svo sem ekkert við því að segja, en það færir okkur samt heim sanninn um það hversu mikilvægt það er að þingmál séu vel undirbúin, komi fram á góðum tíma. Þá er ég t.d. að vísa til þess að mál komi fyrr frá ráðuneytum til kasta Alþingis heldur en oft hefur verið hér undanfarin ár. Auðvitað er þessi umræða mjög nauðsynleg vegna þess að við þurfum líka að horfa inn á við, þ.e. að aukinni aðstoð við þingmenn hvað varðar sérfræðiaðstoð, að þingið sé þess megnugt að veita þingmönnum ráðgjöf og góða aðstoð við undirbúning verka.

Það er líka náttúrlega eitt sem við ættum að athuga og það er að skipuleggja umræður hvaða ræðutíma varðar eins og gert er víða annars staðar. En mér er líka mjög ofarlega í huga að það væri til bóta, og það er ekki við neina aðra að tala en okkur sjálf um það, að auka sýnileika þess sem hér gerist, auka sýnileika þingstarfanna. Almenningur gerir sér skiljanlega enga grein fyrir því hvernig við erum að vinna, hvað við erum að gera og heldur náttúrlega að við séum að svíkjast um ef við sitjum ekki hér. En það sem við þurfum að færa mönnum heim sanninn um og þeim kjósendum sem við þjónum er það að starf þingmannsins er 24 tíma starf. Það þurfa bara allir að vita, bæði þeir sem gefa kost á sér til þess og þeir sem við erum að vinna í umboði fyrir.

Þess vegna held ég að það væri mjög til bóta að við gætum á einhvern hátt aukið sýnileika þess sem hér er að gerast til þess að auka skilning almennings á því (Forseti hringir.) hvernig starfið fer fram. Ég held að með þeim hætti væri hugsanlega hægt að auka virðingu og traust til Alþingis aftur.