148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[17:21]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég styð þetta mál ásamt nokkrum öðrum þingmönnum Pírata þótt ég sé reyndar ekki á málinu sjálfur. Ég er þeirrar skoðunar að 16 ára fólk sé ekki börn. Ég veit að þau eru það samkvæmt lögum, en þau eru ekki börn. Þetta er millistig milli þess að vera barn og fullorðinn einstaklingur. Mér finnst ekki að við eigum að láta eins og þetta séu börn. Þetta fólk er einfaldlega ekki börn.

Mín vegna má alveg fara beinustu leið í það að lækka kosningaaldur niður í 16 gagnvart Alþingi líka. En eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson fór hérna yfir áðan þá krefst það stjórnarskrárbreytingar sem er í eðli sínu miklu stærra mál og við gerum það auðvitað ekki milli jóla og nýárs eins og sagan sýnir. En ég styð þetta mál vegna þess að ég styð það að unglingar eigi að venjast því að taka þátt í samfélaginu sínu og mega taka þátt í samfélaginu sínu og hafa óskoraðan rétt til þess að láta skoðanir sínar hafa áhrif á gang mála.

Ég myndi meira að segja vilja ganga lengra. Mér finnst mikilvægt að á þessum aldri, þessum mótunarungslingsáraaldri, þá upplifi unglingar ekki bara það að þeir greiði atkvæði og kjósi um eitthvað og það sé bara frábær hugmynd og allir rosa kátir eftir á, heldur líka að unglingar fái að taka ákvarðanir sem geta leitt af sér einhvers konar mistök í skólum og öðrum stofnunum þar sem þau taka þátt. Mér finnst mjög mikilvægt að þau fái að hafa raunveruleg áhrif, til að þau finni að valdið skipti máli. En það er róttækara en þetta frumvarp sem við erum að tala um hér.

Ég get ekki annað en minnst líka á frumvarp sem var lagt fram af hv. þáverandi þingmanni, Ástu Guðrúnu Helgadóttur, um að gefa sveitarstjórnum færi á því að hafa annað hlutfall heldur en 20% til þess að kalla eftir atkvæðagreiðslu um tiltekin mál innan sveitarstjórna. Frumvarpið felur það í sér einfaldlega að sveitarstjórnir geti haft það hlutfall lægra. Þá þykir mér einsýnt, sérstaklega á sveitarstjórnarstigi, að 16 ára unglingar ættu að taka þátt í slíkum atkvæðagreiðslum þar sem það eru ákvarðanir sem standa nær borgaranum, nær kjósandanum. Ég held að það myndi þjálfa unglingana enn frekar í því að taka lýðræðislegar ákvarðanir og sjá að þær hafi áhrif, ýmist þeim til geðs eða ekki.

Í öllu falli styð ég þetta mál og vona vissulega að það nái í gegn fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar enda sé ég enga ástæðu til að bíða eitthvað lengur en það. Það væru líka væntanlega fjögur ár í næstu tilraun og því er um að gera að prófa strax.