fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þeim sem hér hafa tekið til máls fyrir orð þeirra og áherslur og stuðninginn við frumvarpið. Við erum þá öll sammála um að þetta sé þjóðþrifamál og mikilvægt að það sé tekið til nánari skoðunar. Hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir nefndi að það gengi hugsanlega ekki nógu langt og kom inn á fleiri kostnaðarliði, t.d. kostnað vegna húsnæðis. Ég held að í þau skipti sem málið hefur verið til umræðu í þingsal hafi þessi þáttur alltaf komið upp, kostnaður vegna húsnæðis, dvalarkostnaður. Ég myndi halda að þegar velferðarnefnd tekur málið til umfjöllunar og nánari skoðunar taki hún tillit til þeirra ábendinga og komi mögulega með einhverja útfærslu á því. En eins og hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson nefndi á slík breyting heima í öðrum lögum. Það er eitthvað sem við þurfum að skoða.
Ég held að ástæða þess að þetta ágæta frumvarp hefur ekki náð fram að ganga fyrr, þrátt fyrir að vera núna lagt fram í fimmta skiptið, sé ekki sú að það hafi komið fram rök gegn því eða einhver andstaða sé gegn því, pólitísk andstaða einhvers staðar. Ég hef ekki skynjað það þannig heldur tel ég frekar að ólgan í stjórnmálum hafi haft sín áhrif. Það hefur aldrei gefist tími til að vinna málið. Það var aðeins í eitt skipti sem það komst frá hv. velferðarnefnd aftur, ef ég man rétt. Þetta hefur verið svolítið sundurlaust. En ég vona að málið fái að þessu sinni góða umfjöllun í velferðarnefnd, komi aftur hingað inn í þingsal og fáist vonandi samþykkt innan fárra mánaða.